Psalms 104

1Lofa þú Drottin, sála mín! Drottinn, Guð minn, þú ert harla mikill. Þú ert klæddur hátign og vegsemd. 2Þú hylur þig ljósi eins og skikkju, þenur himininn út eins og tjalddúk. 3Þú hvelfir hásal þinn í vötnunum, gjörir ský að vagni þínum, og ferð um á vængjum vindarins. 4Þú gjörir vindana að sendiboðum þínum, bálandi eld að þjónum þínum. 5Þú grundvallar jörðina á undirstöðum hennar, svo að hún haggast eigi um aldur og ævi. 6Hafflóðið huldi hana sem klæði, vötnin náðu upp yfir fjöllin, 7en fyrir þinni ógnun flýðu þau, fyrir þrumurödd þinni hörfuðu þau undan með skelfingu. 8Þau gengu yfir fjöllin, steyptust niður í dalina, þangað sem þú hafðir búið þeim stað. 9Þú settir takmörk, sem þau mega ekki fara yfir, þau skulu ekki hylja jörðina framar. 10Þú sendir lindir í dalina, þær renna milli fjallanna, 11þær svala öllum dýrum merkurinnar, villiasnarnir slökkva þorsta sinn. 12Yfir þeim byggja fuglar himins, láta kvak sitt heyrast milli greinanna. 13Þú vökvar fjöllin frá hásal þínum, jörðin mettast af ávexti verka þinna. 14Þú lætur gras spretta handa fénaðinum og jurtir, sem maðurinn ræktar, til þess að framleiða brauð af jörðinni 15og vín, sem gleður hjarta mannsins, olíu, sem gjörir andlitið gljáandi, og brauð, sem hressir hjarta mannsins. 16Tré Drottins mettast, sedrustrén á Líbanon, er hann hefir gróðursett 17þar sem fuglarnir byggja hreiður, storkarnir, er hafa kýprestrén að húsi. 18Hin háu fjöll eru handa steingeitunum, klettarnir eru hæli fyrir stökkhérana. 19Þú gjörðir tunglið til þess að ákvarða tíðirnar, sólin veit, hvar hún á að ganga til viðar. 20Þegar þú gjörir myrkur, verður nótt, og þá fara öll skógardýrin á kreik. 21Ljónin öskra eftir bráð og heimta æti sitt af Guði. 22Þegar sól rennur upp, draga þau sig í hlé og leggjast fyrir í fylgsnum sínum, 23en þá fer maðurinn út til starfa sinna, til vinnu sinnar fram á kveld. 24Hversu mörg eru verk þín, Drottinn, þú gjörðir þau öll með speki, jörðin er full af því, er þú hefir skapað. 25Þar er hafið, mikið og vítt á alla vegu, þar er óteljandi grúi, smá dýr og stór. 26Þar fara skipin um og Levjatan, er þú hefir skapað til þess að leika sér þar. 27Öll vona þau á þig, að þú gefir þeim fæðu þeirra á réttum tíma. 28Þú gefur þeim, og þau tína, þú lýkur upp hendi þinni, og þau mettast gæðum. 29Þú byrgir auglit þitt, þá skelfast þau, þú tekur aftur anda þeirra, þá andast þau og hverfa aftur til moldarinnar. 30Þú sendir út anda þinn, þá verða þau til, og þú endurnýjar ásjónu jarðar. 31Dýrð Drottins vari að eilífu, Drottinn gleðjist yfir verkum sínum, 32hann sem lítur til jarðar, svo að hún nötrar, sem snertir við fjöllunum, svo að úr þeim rýkur. 33Ég vil ljóða um Drottin meðan lifi, lofsyngja Guði mínum meðan ég er til. 34Ó að mál mitt mætti falla honum í geð! Ég gleðst yfir Drottni. 35Ó að syndarar mættu hverfa af jörðunni og óguðlegir eigi vera til framar. Vegsama þú Drottin, sála mín. Halelúja.
Copyright information for Icelandic